booking(a)hotelklettur.is
Hotel Klettur Tourist TV

Finndu okkur

Frá Keflavíkurflugvelli:

Það eru um 40 mínútur akstur frá Keflavíkurflugvelli að hótel Kletti en það eru um 48 km.

Airport Direct

Airport Direct ásamt Flybus aka reglulegar ferðar frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur sem flytur gesti á hótel Klett.

Airport Direct bókanir:
Flybus

Það tekur um 45 mínútur að aka frá flugstöðinni að Umferðarmiðstöðinni BSÍ. Ef keyptur er Flybus+ (return) miði, þá er farþeginn sóttur á hótelið og á fyrirfram ákveðnum tíma og keyrður á Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gestir fara í venjulegri rútu frá flugvellinum en verða að skipta í minni rútur á BSÍ, þaðan er þeim skutlað á sinn stað. Hér má finna nánari upplýsingar um ferðir og verð.

Það tekur um 70 mínútur að fara frá Keflavíkurflugvelli að hótel Kletti með Airport Direct eða Flybus.

Frá BSÍ

Það eru aðeins um 2,5 km frá BSÍ að hótel Kletti. Auðvel er að taka leigubíl eða að nýta Airport Direct eða Flybus þjónustuna ef komið er frá Keflavíkurflugvelli.

Á bíl

Að keyra milli flugvallarins og borgarinnar er einfalt mál. Ferðin tekur um 45 mínútur. Það er jafnvel hægt að koma við í Bláa lóninu sem staðsett er nokkurn veginn miðja vegu milli borgarinnar og flugvallarins. Hótel Klettur er staðsett í Mjölnisholti 12 -14. Ókeypis bílastæði eru í boði á hótelinu.

Leigubíll

Á Keflavíkurflugvelli eru leigubílar til taks allan sólahringinn. Fólk er beðið um að panta tímanlega.

Strætóferðir til og frá Keflavíkurflugvelli

Reglulegar strætóferðir eru til og frá Reykjavíkur og nágrennis frá Keflavíkurflugvelli. Strætó frá BSÍ: nr. 15 og stoppað við Þjóðskrásafnið. Áætlun og tímatöflu á vefsíðu má Strætó hér.

(+354) 440 1600

|

Tourist TV