booking(a)hotelklettur.is
Hotel Klettur Tourist TV

Þjónusta og skilmálar

Móttaka

24 klst móttaka.

Innritun & Útritun

Innritun hefst kl 15:00 en útritun þarf að vera lokið fyrir kl 11:00.

Afbókunarskilmálar

Afpöntunar- og fyrirframgreiðsluskilmálar eru breytilegir eftir herbergistegund. Afbókun einstaklings verður að hafa borist skriflega innan 24 tímum fyrir komutíma. Ef afbókað er með styttri fyrirvara þarf að greiða fyrir eina gistinótt. Sama gildir um no show. Vinsamlegast hafið samband við hótelið til að fá ítarlegri upplýsingar.

Upplýsingar um morgunverð

Á jarðhæð erum við með morgunverðarsalinn okkar. Morgunverður er í boði frá kl 07:00 – 10:00 en einnig er hægt að biðja um morgunverð snemma fyrir þá sem þurfa að fara fyrr í flug. Morgunverðurinn er innifalinn í gistiverðinu.
Grænmetis, Vegan, Glútenlaus, Hlaðborð.

Gæludýr

Gæludýr eru ekki leyfð á hótelinu.

Greiðslukort

Visa, Maestro, JSB, Euro/Mastercard, Discover Card Diners Club og American Express. Hótel Klettur áskilur sér þann rétt til að taka frá upphæð tímabundið af greiðslukortinu þínu fyrir komu.

Reykingar

Reykingar og rafrettur eru stranglega bannaðar og eru ekki leyfðar við inngang hótelsins, nálægt herbergjagluggum, í herbergjunum og innandyra. Sérstök reykingaraðstaða er hægra megin fyrir framan hótelið. 25.000 sekt við reykingum.

Börn og aukarúm

Öll börn yngri en 2 ára dvelja án greiðslu í barnarúmi. Eitt barn 3 – 5 ára dvelur án greiðslu þegar notuð eru rúm sem eru til staðar. Fyrir öll börn er innheimt aukagjald fyrir nótt í aukarúmi. Gjaldið fer eftir gjaldskrá hótelsins hverju sinni.

Hressing

Boðið er upp á kaffi og te í öllum herbergjum. Ef þig langar í eitthvað til að maula er hægt að kaupa hressingu í móttökunni.

Óskilamunir

Vinsamlegast hafið samband við hótelið á netfangið lostandfound@hotelklettur.is

Öryggiseftirlit

Öryggismyndavélaupptaka er í gangi á almennum rýmum hótelsins, afgreiðslustöðvum, vörumóttöku og í eldhúsi. Upptökur eru vistaðar 6 vikur aftur í tímann. Tilgangur öryggismyndavéla er almenn öryggis- og eignavarsla.

Öryggismál

Markmiðið hótel Kletts er að leggja áherslu á áreiðanleika og öryggi með ábyrgum rekstri. Öryggisstefna fyrirtækisins er mótuð út frá lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustu og öryggi starfsmanna og öryggishandbók fyrir gististaði, veitingastaði og skemmtistaði sem gefin er út af SAF.

Þjófnaður

Allur þjófnaður er kærður til lögreglu.

Meðferð persónuupplýsinga

Ítrasta öryggis er gætt í meðferð persónuupplýsinga. Þær persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Allar fyrirspurnir varðandi persónuvernd má senda á netfangið booking@hotelklettur.is

Umhverfisstefna

Við erum umhverfisvænt hótel og stuðlum ávallt að því að okkar „kolvetnisfótspor“ séu sem minnst. Með ykkar hjálp þá getum við gert enn betur. Ef þér er stendur á sama að nota sömu handklæðin í einhverja daga þá mælum við með að hengja þau ávallt upp svo að þernur hótelsins skilji að þú þurfir ekki skipti.

Stillingar á vafrakökum:

Á þessu vefsvæði eru notaðar vafrakökur til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda.

Notkun á vafrakökum

Vafrakökur (e. Cookies) eru litlar textaskrár sem vistast í tölvu notandans. Þær eru notaðar til þess að bera kennsl á notendur og til að greina heimsóknir á vefsíðuna okkar.

Notkun á vafrakökum gerir okkur kleift að fylgjast með hvernig notendur nota síðuna og hvernig við getum aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra. Við hverja komu inn á vefinn er skráður tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vefsíðu er komið, tegund vafra og stýrikerfi. Við notum gögn sem safnað er með t.d. Google Analytics til þess að bæta þjónustu okkar. Vafrakökur innihalda sjaldnast eða aldrei einhverjar persónuupplýsingar um notendur.

Sumar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsvæða og koma m.a. í veg fyrir árasir tölvuþrjóta. Tímabundnar vafrakökur eyðast þegar notandi fer af vefsvæði og eru því ekki vistaðar til lengri tíma en aðrar vafrakökur hafa lengri gildistíma.
Notendur geta stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Athuga skal að ef lokað er á allar kökur, mun það að öllum líkindum hafa áhrif á virkni síðunnar.

Markhópagreining

Vafrakökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingar um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi uppýsingar.

Viltu spyrja einhvers um vefkökur og persónuupplýsingar? Hafðu þá samband við okkur í gegnum booking@hotelklettur.is eða sent okkur fyrirspurn hér.

 

 

 

(+354) 440 1600

|

Tourist TV