Vinsælir veitingastaðir
Klettur er í göngufæri við allt það helsta sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða. Til að mynda tekur það aðeins um tvær mínútur að rölta niður á Hlemm og Laugaveg og því er hótel Klettur frábær kostur fyrir þá sem vilja vera í hjarta miðbæjarins.
Nokkrir vinsælir veitingastaðir í nágrenni:
Hlemmur mathöll – Laugavegur 107
Ómissandi viðkomustaður fyrir alla sælkera. 300 metrar frá hótelinu.
Potturinn og pannan – Brautharholt 22
Vinsæll fjölskyldustaður.
Reykjavík Roasters – Brautarholt 2
Þvert yfir götuna finnur þú kaffihúsið vinsæla.
Restó – Rauðarárstíg 27-29
Veitingastaður sem leggur áherslu á fiskrétti sem nostra við bragðlaukana.
Ban Thai Restaurant – Hverfisgata 125
Ekta tælenskur matur. Staðurinn hefur m.a. verið kosinn besti tælenski veitingastaðurinn á Íslandi af The Reykjavík Grapevine.
Roadhouse – Snorrabraut 56
Úrvals hamborgarar, steikur, rif og fleira gott í anda amerískra „dinera“ frá seinni hluta síðustu aldar.
Noodle Station – Laugavegur 103
Vinsæll núðlusúpustaður.
Hamborgarafabrikkan – Höfðatorg 2
Ljúffengir hamborgarar og annað girnilegt.