Klettur Bar
Hótelbarinn á Kletti er staðsettur á fyrstu hæð hótelsins. Barinn er einstaklega notalegur og við mælum eindregið með því að staldra þar við til að væta kverkarnar og njóta góðra drykkja.
Boðið er upp á úrval íslenskra bjóra, kokteila og annarra drykkja. Barinn er opinn frá 14 – 23 alla daga og frá 17 – 20 er gleðistund þar sem bjór af dælu fæst á gleðiverði.